• Stokkönd

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Stokkandarkolla

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Stokkönd - steggur í felli

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Steggur og kolla

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Steggur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Stokkönd er algeng, stór buslönd sem flestir kannast við. Steggurinn, grænhöfðinn, er með glansandi dökkgrænt höfuð og háls, neðst á hálsi er hvítur hálshringur og neðan hans tekur við rauðbrún bringan. Búkur og vængir eru gráleit, dekkri og brúnleitari að ofan en neðan. Undirstél og undirgumpur eru svört, stélið hvítt og gumpurinn svartur með tveimur krókfjöðrum fyrir miðju. Í felubúningi er hann dekkri en kollan, sérstaklega á höfði, og goggur gulleitari. Ungfuglar taka á sig lit fullorðinna fugla strax á fyrsta hausti. Kollan er brúnflikrótt, með ljósara höfuð og bringu. Höfuð og háls eru fínlega rákótt, með dekkri koll og augnrák. Bæði kyn hafa dökkbláa vængspegla með hvítum og svörtum bryddingum.

Stokkönd er stærst og þéttvöxnust buslandanna og oftast auðgreind. Hún flýgur hratt með grunnum vængjatökum og flýgur snöggt upp af vatni með bröttu uppflugi. Á auðvelt með gang og gengur í láréttri stöðu. Hún leitar sér ætis með því að hálfkafa með bakhlutann upp í loft, aðeins með haus og háls undir yfirborði, eða hún tínir æti úr vatnsborði. Karlfuglinn yfirgefur kvenfuglinn meðan hann liggur á og safnast steggirnir í hópa til að fella flugfjaðrir. Pörun stendur síðan yfir allan veturinn fram á vor.


Fæða og fæðuhættir:
Er bæði plöntu- og dýraæta. Hálfkafar eða buslar eftir smádýrum, fræjum, rótum og sprotum á grunnu vatni, leitar einnig ætis á þurru landi. Kollur um varptímann og ungar lifa aðallega á dýrafæðu (t.d. rykmýslirfum og -flugum) fyrstu vikurnar. Kafar stundum.


Fræðiheiti: Anas platyrhynchos

Kjörlendi og varpstöðvar

Verpur í margs konar kjörlendi, þó aðallega í og við votlendi á láglendi, oft nærri mannabústöðum. Hreiðrið er venjulega vel falið í gróðri, milli steina eða þúfna, í drasli o.s.frv., gert úr grasi og fóðrað með dúni. Stokkendur fella flugfjaðrir á vötnum og tjörnum girtum stör. Eru á veturna við strendur en einnig á íslausu ferskvatni.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Stokköndin er að mestu staðfugl. Hún er sennilega útbreiddasta öndin á láglendi, en er sjaldgæf á hálendinu. Hún hefur mikla aðlögunarhæfni og er oft í nánu sambýli við manninn. Sést víða um land á veturna. Talið er að slæðingur hafi vetursetu á Bretlandseyjum. Algeng um allt norðurhvelið og hefur verið flutt um allan heim.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR