- Sanderla- ©Jóhann Óli Hilmarsson
- Fullorðnar - vor- ©Jóhann Óli Hilmarsson
- Sanderla að vetri til- ©Jóhann Óli Hilmarsson
- ©Jóhann Óli Hilmarsson
- Fullorðin, vetur- ©Jóhann Óli Hilmarsson
Almennar upplýsingar
 Sanderla er lítill, kvikur og ljósleitur vaðfugl. Í sumarfiðri er sanderlan rauðbrún á höfði, hálsi og bringu, á baki eru fjaðrirnar ljós- og dökkjaðraðar. Vængþökur eru gráar, bringa og kviður hvít. Vetrarbúningurinn er mjög ljós, fuglinn er þá hvítur á höfði, hálsi og að neðan, grár á kolli og að ofan. Hvít vængbelti eru áberandi og dökkur framjaðar vængja áberandi á flugi. Gumpur og stél eru grá með hvítum jöðrum.
Hún er mjög kvik og á sífelldu iði. Hún er félagslynd og sést hér oftast í litlum hópum. Gefur frá sér stutt og hvellt hljóð.
Fæða og fæðuhættir: 
    Leitar oftast ætis með því að hlaupa til og frá í sandfjörum, elta öldusogið og tína úr því fæðuna, sem eru burstaormar, samlokur, marflær og skordýr.
Fræðiheiti: Calidris alba
 
		 
		 
				   
		