Hvað er fugl? Við erum ekki há í loftinu þegar fuglarnir vekja athygli okkar. Þeim sem kominn er til vits og ára ætti að vera ljóst hvað sé fugl. Kannski ættum við þó í vandræðum með að útskýra hvað væri fugl fyrir einhverjum sem aldrei hefði litið þá augum! Hjálpumst að við að finna einkenni fugla. Einkenni fugla Sameiginleg einkenni fugla: þeir eru fiðraðir þeir hafa heitt blóð beinin eru gjarnan hol og létt þeir hafa gogg framfætur eru ummyndaðir í vængi afturfætur eru notaðir til gangs þeir verpa eggjum flestir þeirra fljúga